Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Boltastrákurinn mikilvægi skoraði fyrir U18 lið Liverpool
Þessi boltastrákur tengist fréttinni ekki.
Þessi boltastrákur tengist fréttinni ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hinn 14 ára gamli Oakley Cannonier átti óvænt þátt í 4-0 sigri Liverpool á Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vor.

Oakley var fljótur að láta Trent Alexander-Arnold fá boltann fyrir hornspyrnu. Trent tók hornspyrnuna og gaf á Divock Origi sem skoraði á meðan leikmenn Barcelona sváfu á verðinum.

Markið kom Liverpool í 4-0 og tryggði liðinu 4-3 sigur á Barcelona samanlagt.

Oakley er sjálfur efnilegur leikmaður og hann skoraði sitt fyrsta mark með U18 ára liði Liverpool í 4-0 sigri á Burton í gær.

Oakley hefur átt þátt í marki hjá aðalliði Liverpool á Anfield sem boltastrákur og spurning er hvort hann nái að spila sjálfur leik þar með aðalliðinu í framtíðinni?



Athugasemdir
banner
banner
banner