Tchaouna til Coventry (Staðfest)

Mynd: Coventry FC

Mynd: Coventry FC
Nýliðar Coventry City hafa fest kaup á vængmanninum Loum Tchaouna frá Burnley fyrir 20 milljónir punda.
Tchaouna er 22 ára gamall og gekk í raðir Burnley frá Lazio á síðasta ári.
Hann féll með Burnley niður í B-deildina, en verður áfram í ensku úrvalsdeildinni.
Coventry og Burnley náðu samkomulagi um kaupverð og hefur Tchaouna nú skrifað undir fimm ára samning við Coventry.
„Ég spilaði með Burnley í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og það var ótrúleg reynsla.“
„Ég mun koma með orku, áræðni og leiðtogahæfileika inn í liðið. Ég hef spilað í Frakklandi, Seríu A og núna ensku úrvalsdeildinni, bestu deild heims, þannig að ég er með mikla reynslu miðað við aldur.“
„Ég er spenntur að spila á Coventry Building Society-leikvanginum og get ekki beðið eftir að tímabilið fari af stað,“ sagði Tchaouna.
Tchaouna er fyrrum unglingalandsliðsmaður Frakklands. Hann var markahæstur með U19 ára landsliðinu á EM 2022 og var valinn í lið mótsins. Alls á hann 53 landsleiki og 17 mörk að baki með yngri landsliðum Frakklands.