Fotbolti.net
11.07.26 - 06:53
Arnar Laufdal Arnarsson

Ungstirni vikunnar - Ayyoub Bouaddi

Það þarf nú varla að kynna knattspyrnuáhugamenn fyrir ungstirni vikunnar en það er Ayyoub Bouaddi, miðjumaður Lille og Marakóska landsliðsins.
Í byrjun árs 2026 voru kannski ekki alveg allir sem könnuðust við þennan leikmann, 18 ára djúpur miðjumaður fæddur árið 2007 sem skorar varla mörk eða leggur upp. Hann hefur hins vegar stolið mörgum fyrirsögnum á þessu heimsmeistaramóti í Ameríku þar sem hann hefur byrjað fjóra leiki fyrir Marakkó og er nú eftirsóttur af stærstu liðum heims. Real Madrid og Manchester City eru talin líklegust að klófesta þennan frábæra leikmann.
Fotbolti.net hafði samband við liðsfélaga Bouaddi, en Hákon Arnar Haraldsson leikmaður íslenska landsliðsins hefur nú leikið þrjú tímabil með honum og þekkir auðvitað vel til hans, Hákon gaf okkur betri innsýn hvernig leikmaður og karakter, Ayyoub Bouaddi er.

Fyrst þegar að Ayyoub kemur á æfingu, var þetta eitthvað sem þú sást fyrir þér ?

"Já og nei, bjóst kannski ekki við því svona snemma en hann var alltaf að fara springa út. Hann byrjaði með okkur sextán ára minnir mig, og hann var strax byrjaður að taka mikið til sín. Ótrúlegt hvað hann var þroskaður miðað við 16 ára pjakk"

Hvernig er samband ykkar tveggja ?

"Samband okkar er bara gott, við sitjum saman í klefanum þannig ég svona í raun og veru hef tekið hann undir minn væng ef svo má segja"

Kemur þetta þér á óvart hann hefur skotist svona upp á stjörnuhimininn ?

"Nei kemur mér bara ekkert á óvart. Þessi prófíll sem hann er orðinn og hvað hann hefur þroskast mikið á stuttum tíma, þá sá maður bara þetta væri tímaspursmál"

Kæmi það þér á óvart ef hann væri í herbúðum Lille þegar tímabilið 26/27 byrjar ?

"Ég persónulega held hann verði alltaf seldur út en svo er bara spurningin hvort hann verði kannski lánaður til baka og tæki eitt tímabil í viðbót með okkur og væri svo klár í að taka stóra skrefið í eitt af þessum stóru liðum sem er búið að orða hann við"

Ef ekki, hvert væriru til í að sjá hann fara ?

"Ef ég mætti ráða væri ég til í að sjá hann fara til Manchester United eða Real Madrid, held hann væri flottur þar að spila með þeim stærstu"

Hvernig myndiru lýsa honum sem leikmanni og manneskju ?

"Hann er nefnilega mjóg hógvær og rólegur. Margir væru alveg lengst uppi og farnir að missa hausinn en hann er alls ekki þannig og þess vegna held ég að hann eigi eftir að fara mjög langt"

https://www.youtube.com/watch?v=frKiXaYmAzU

læt hérna myndband fylgja
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.