11.08.26 - 23:40
Elvar Geir Magnússon
Portúgalskir dómarar í Fossvoginum
Lettar dæma leik Vals í Danmörku

Luís Godinho.

Mynd: EPA

Luís Godinho.

Mynd: EPA
Íslandsmeistarar Víkings taka á móti svissnesku meisturunum í Thun í seinni viðureigninni í forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Thun vann 3-0 sigur í fyrri leiknum og Víkingar því í ansi erfiðri stöðu.
Allt bendir til þess að Víkingur muni fara í umspil um sæti í Sambandsdeildinni.
Það verður reyndur portúgalskur dómari með flautuna í Fossvoginum. Hann heitir Luís Godinho og dæmdi einn leik í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.
Allt dómarateymi leiksins kemur frá Portúgal, þar á meðal er VAR dómarinn Fábio Melo.

Valur á útileik gegn danska liðinu Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudag. Allt dómarateymið í þeim leik kemur frá Lettlandi og aðaldómari verður Edgars Malcevs. Meðfram dómgæslu starfar hann sem skurðlæknir. Nordsjælland er með öll spil á hendi eftir 2-0 sigur á Hlíðarenda og líklegt að Evrópuverkefni Vals ljúki á fimmtudag.