11.10.19 - 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg fór meiddur af velli eftir 13 mínútur
Missir hann af leiknum við Andorra?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson er farinn meiddur af velli hjá Íslandi sem leikur nú við Heimsmeistara Frakklands á Laugardalsvelli.
Jóhann Berg virtist togna aftan í læri. Hann féll í jörðina á 13. mínútu og þurfti á skiptingu að halda.
Inn í hans stað kom Jón Daði Böðvarsson.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Jói Berg hefur verið í meiðslavandræðum upp á síðkastið. Hann er nýkominn til baka úr kálfameiðslum sem hafa haldið honum frá keppni síðan í ágúst.
Hann missti af landsleikjunum gegn Albaníu og Moldóvu í síðasta mánuði og afar ólíklegt er að hann verði með gegn Andorra á mánudaginn.

Jóhann Berg Guðmundsson fer meiddur af velli eftir aðeins þrettán mínútur. Gríðarlega svekkjandi. Jón Daði Böðvarsson kemur inn á í hans stað. pic.twitter.com/X1hKJQaN8M
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 11, 2019