Fotbolti.net
11.12.24 - 13:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sveindís birtir fyrstu myndina af sér og Rob Holding

Rob Holding og Sveindís Jane Jónsdóttir.

Rob Holding og Sveindís Jane Jónsdóttir.

Canon

Mynd: TikTok

Kvennaboltinn
Sveindís Jane Jónsdóttir, lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, hefur birt fyrstu myndina af sér og Rob Holding, varnarmanni Crystal Palace á Englandi, en þau hafa verið að hittast.

Sveindís birtir mynd af sér og Holding í myndbandi á samfélagsmiðlinum TikTok.
Sveindís þarf að taka stóra ákvörðun - „Ætla að halda því fyrir mig"
TENGT EFNI

Sveindís þarf að taka stóra ákvörðun - „Ætla að halda því fyrir mig"

Einnig eru fleiri myndir af Holding í myndbandinu sem hægt er að sjá með því að smella hérna. „Lífið undanfarið. Ást, Ást, Ást," skrifar Sveindís við myndbandið.

Sveindís, sem er 23 ára, er ein besta fótboltakona Íslands og er hún í algjöru lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu. Hún er á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en verður samningslaus eftir yfirstandandi tímabil.

Holding er 29 ára en hann gekk í fyrra í raðir Crystal Palace eftir að hafa leikið með Arsenal frá 2016 til 2023. Hann hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Palace.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.