Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. janúar 2019 12:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: ÍA valtaði yfir Keflavík
Stefán Teitur kom ÍA á bragðið.
Stefán Teitur kom ÍA á bragðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 4 - 0 Keflavík
1-0 Stefán Teitur Þórðarson ('11)
2-0 Arnar Már Guðjónsson ('38)
3-0 Gonzalo Zamorano Leon ('45)
4-0 Einar Logi Einarsson ('59)

ÍA átti ekki í miklum vandræðum með Keflavík þegar liðin mættust í A-deild Fótbolta.net mótsins í morgun.

ÍA byrjaði af krafti og náði forystunni strax á 11. mínútu en það var Stefán Teitur Þórðarson sem kom Skagamönnum á bragðið.

Arnar Már Guðjónsson kom ÍA í 2-0 og rétt fyrir hálfleik skoraði Spánverjinn Gonzalo Zamorano Leon þriðja markið. Gonzalo kom til ÍA frá Víkingi Ólafsvík á dögunum.

Einar Logi Einarsson skoraði fjórða markið fyrir ÍA þegar rétt tæpur klukkutími var liðinn af leiknum en það reyndist síðasta mark leiksins.

Lokatölur 4-0 fyrir ÍA, en þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu. Stjarnan og FH eru einnig í þessum riðli en þau lið mætast á þriðjudag.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner