Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 12. janúar 2021 09:35
Elvar Geir Magnússon
Celtic var hársbreidd frá sigri með þrettán leikmenn í sóttkví
Hinn 17 ára Karamoko Dembele í leiknum í gær.
Hinn 17 ára Karamoko Dembele í leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
Skoski úrvalsdeildarleikurinn milli Celtic og Hibernian fór fram í Glasgow í gær, þrátt fyrir að þrettán leikmenn og þjálfarateymi Celtic væru í sóttkví.

Celtic, með varaliðið sitt, komst yfir með frábærri aukaspyrnu David Turnbull og allt stefndi í sigur liðsins en Hibernian jafnaði í 1-1 í uppbótartíma og urðu það lokatölur leiksins.

Celtic er í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar en liðið er 21 stigi frá grönnum sínum og erkifjendum í Rangers sem tróna á toppnum. Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, er stjóri Rangers.

Franski varnarmaðurinn Christopher Jullien greindist með Covid-19 og í kjölfarið fóru alls þrettán leikmenn Celtic í sóttkví ásamt Neil Lennon, stjóra liðsins, og aðstoðarmanni hans.

Celtic fór í æfingaferð til Dúbaí í vetur en sú ferð hefur fengið mikla gagnrýni í Skotlandi. Öll önnur lið landsins héldu sig heima vegna heimsfaraldursins.
Athugasemdir
banner
banner
banner