Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 12. janúar 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Tottenham hefur áhuga á táningi í Wigan
Kyle Joseph fagnar marki fyrir Wigan.
Kyle Joseph fagnar marki fyrir Wigan.
Mynd: Getty Images
Kyle Joseph, nítján ára sóknarmaður Wigan, hefur vakið athygli en Tottenham, Sheffield United, Rangers og Celtic eru öll sögð hafa áhuga á honum.

Joseph hefur leikið vel í ensku C-deildinni og skoraði þrennu gegn Burton nýlega.

Samningur þessa U19 landsliðsmanns Skotlands við Wigan rennur út í sumar.

Eftir að hann skoraði þrennuna gegn Burton sagði Joseph:

„Það er draumur allra stráka að spila fyrir aðalliðið og skora þrennu. Þetta er eitthvað sem ég lét mig dreyma um þegar ég lék mér með vinum mínum í garðinum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner