Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 12. janúar 2023 19:17
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Fulham og Chelsea: Joao Felix beint í liðið
Joao Felix byrjar hjá Chelsea
Joao Felix byrjar hjá Chelsea
Mynd: Chelsea
Portúgalski sóknartengiliðurinn Joao Felix byrjar sinn fyrsta leik fyrir Chelsea er liðið heimsækir Fulham á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 20:00.

Felix gekk í raðir Chelsea á lánssamningi frá Atlético Madríd í gær og það er ekkert verið að flækja hlutina.

Hann er kominn inn í byrjunarlið Chelsea. Alls eru fjórar breytingar frá 4-0 tapinu gegn Manchester City. Thiago Silva, Cesar Azpilicueta og Denis Zakaria koma allir inn í liðið.

Marco Silva, stjóri Fulham, gerir sex breytingar frá 2-0 sigrinum á Hull í enska bikarnum.

Fulham: Leno, Tete, Adarabioyo, Ream, Robinson, Joao Palhinha, Reed, de Cordova-Reid, Pereira, Willian, Vinicius.

Chelsea: Kepa, Chalobah, Thiago Silva, Koulibaly, Azpilicueta, Zakaria, Kovacic, Hall, Mount, Joao Felix, Havertz.
Athugasemdir
banner
banner
banner