Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. febrúar 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chamberlain með í æfingahóp Liverpool - Enginn Gomez
Mynd: Getty Images
Liverpool á ekki leik fyrr en eftir viku þegar Bayern München kemur í heimsókn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Félagið hefur því ákveðið að halda í æfingaferð til Spánar og valdi þjálfarateymið 31 manns hóp til að taka með.

Joe Gomez er ekki með í hópnum eftir að hafa farið í aðgerð á fæti í byrjun mánaðar og verður varnarmaðurinn ungi ekki leikfær fyrr en í mars eða apríl.

Xherdan Shaqiri, sem er tæpur fyrir leikinn gegn Bayern, er með í æfingahópnum sem og Dejan Lovren og Alex Oxlade-Chamberlain.

Lovren verður líklega ekki búinn að ná sér fyrir leikinn en Chamberlain er frá keppni í að minnsta kosti mánuð í viðbót þó hann fari með í ferðina.
Athugasemdir
banner
banner