Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. febrúar 2020 18:01
Aksentije Milisic
Myndband: Rúnar varnarlaus í slysalegu sjálfsmarki
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Dijon og PSG í franska bikarnum en þegar þetta er skrifað er staðan 1-1. Rúnar Alex Rúnarsson er í byrjunarliðinu hjá Dijon.

PSG komst yfir strax eftir 50 sekúndur og var markið vægast sagt slysalegt. Það kom fyrirgjöf meðfram jörðinni þegar Wesley Lautoa, miðvörður Dijon, skaut knettinum beint í eigið net, óverjandi fyrir Rúnar.

Fótavinnan var slæm hjá Lautoa og virðist sem hann hafi ætlað sér að skjóta knettinum aftur fyrir.

Dijon lét þetta ekki hafa of mikil áhrif á sig en á 13. mínútu jafnaði Mounir Chouiar metin fyrir heimamenn og því hörkuleikur í gangi hjá Rúnari og félögum.

Markið slysalega má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner