Fotbolti.net
12.02.23 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Rakel Sjöfn og Lara Margrét í Tindastól (Staðfest)

Rakel Sjöfn og Lara Margrét í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Tindastóll er að styrkja sig fyrir komandi átök í efstu deild kvenna og var að ganga frá samningum við tvo nýja leikmenn.

Rakel Sjöfn Stefánsdóttir, fædd 2000, gengur í raðir Tindastóls eftir að hafa verið uppalin hjá Þór/KA. Rakel Sjöfn á 17 leiki að baki fyrir Þór/KA í efstu deild en hefur einnig leikið fyrir Hamrana og var svo lánuð til Tindastóls á seinni hluta fyrrasumars.

Hún stóð sig vel með Sauðkrækingum og hjálpaði félaginu upp í efstu deild en þetta var í annað sinn sem hún fór á láni til Tindastóls. Hún hefur í heildina skorað 2 mörk í 16 leikjum með Tindastóli í Lengjudeildinni.

Lara Margrét Jónsdóttir, fædd 2001, er einnig komin til Tindastóls. Lara er uppalin hjá félaginu en skipti yfir til ÍR á seinni hluta síðasta sumars.

Hún á í heildina 23 leiki að baki fyrir Tindastól í deild og bikar, þar af tvo í efstu deild.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.