Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   fim 12. mars 2020 22:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta: Fann fyrir slappleika og var prófaður - Sný til baka eins fljótt og auðið er
Fyrir skömmu var greint frá því að Mikel Arteta væri með kórónaveiruna. Arteta var prófaður og fékkst jákvæð niðurstaða úr prófuninni.

Allir leikmenn Arsenal, þjálfarar og aðrir starfsmenn sem hafa verið í nánd við Arteta að undanförnu fara í sóttkví.

Mikel Arteta tjáði sig um veikindin og er hann vonsvikinn með niðurstöðuna: „Þetta eru mikil vonbrigði en ég tók prófið eftir að ég fann fyrir slappleika," sagði Arteta en þetta kemur fram á heimasíðu Arsenal.

„Ég mun snúa aftur til starfa um leið og ég fæ leyfi til þess," bætti Arteta við.
Athugasemdir
banner
banner
banner