Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. mars 2020 21:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evrópudeildin: 10 leikmenn Olympiakos náðu jafntefli - Tveir útisigrar
Leon Bailey skoraði þriðja mark Bayer. Vippaði yfir markvörð Rangers.
Leon Bailey skoraði þriðja mark Bayer. Vippaði yfir markvörð Rangers.
Mynd: Getty Images
Pedro Neto jafnaði fyrir Wolves.
Pedro Neto jafnaði fyrir Wolves.
Mynd: Getty Images
Þremur leikjum lauk rétt í þessu í Evrópudeildinni. Leikið var í Grikklandi, Skotlandi og í Þýskalandi.

Við byrjum í Grikklandi þar sem Wolves var í heimsókn hjá Olympiakos. Grikkirnir urðu manni færri á 28. mínútu þegar Ruben Semedo tók Diego Jota niður við eigin vítateig. Staðan var markalaus í hálfleik en heimamenn komust þó yfir í leiknum. Youssef El Arabi skoraði á 54. mínútu en Pedro Neto sá til þes að Wolves náði allavega inn útivallarmarki með skoti sem fór af varnarmanni og í netið. 1-1 niðurstaðan í Grikklandi.

Á Ibrox tók Rangers á móti Leverkusen. Gestirnir komust í 0-2 áður en George Edmundson minnkaði muninn. Leon Bailey kom Leverkusen í tveggja marka forystu á ný skömmu fyrir leikslok og Leverkusen í góðri stöðu fyrir seinni leikinn, 1-3 niðurstaðan.

Í Wolfsburg tóku heimamenn á móti Shakhtar. Junior Moraes kom gestunum yfir á 17. mínútu en John Brooks jafnaði leikinn á 48. mínútu. Rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok skorað Marcos Antonio sigurmarkið og var það fyrir Shakhtar. Bæði lið klikkuðu á vítaspyrnu i leiknum.

Shakhtar og Leverkusen eru því með forskot fyrir seinni leikinn en jafnt er hjá Olympiakos og Wolves.

Olympiakos 1 - 1 Wolves
1-0 Youseff El Arabi ('54 )
1-1 Pedro Neto ('67 )
Rautt spjald: Ruben Semedo, Olympiakos ('28)

Rangers 1 - 3 Bayer
0-1 Kai Havertz ('37 , víti)
0-2 Charles Aranguiz ('67 )
1-2 George Edmundson ('75 )
1-3 Leon Bailey ('88 )

Wolfsburg 1 - 2 Shakhtar D
0-1 Junior Moraes ('17 )
0-1 Viktor Kovalenko ('22 , Misnotað víti)
0-1 Wout Weghorst ('45 , Misnotað víti)
1-1 John Brooks ('48 )
1-2 Marcos Antonio ('73 )
Athugasemdir
banner
banner
banner