Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. apríl 2021 22:39
Brynjar Ingi Erluson
Grikkland: Elmar spilaði í endurkomusigri
Theodór Elmar er mikilvægur í liði Lamia
Theodór Elmar er mikilvægur í liði Lamia
Mynd: Getty Images
Theodór Elmar Bjarnason var í byrjunarliði Lamia sem vann 2-1 sigur á PAS Giannina í fallbarátturiðlinum í grísku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið lenti undir í leiknum.

Búið er að skipta deildinni í tvo hluta en Lamia hafnaði í 11. sæti deildarinnar og er því í fallbarátturiðlinum.

Elmar og félagar eru þó í ágætis málum en eftir sigurinn gegn Giannina í dag er liðið í 3. sæti riðilsins með 30 stig.

Hann byrjaði inná í dag en var skipt af velli á 76. mínútu leiksins.

Elmar hefur spilað fimmtán leiki í grísku deildinni á þessu tímabili og náð að festa sig í sessi hjá úrvalsdeildarliðinu en hann kom á frjálsri sölu í byrjun árs.


Athugasemdir
banner
banner
banner