Fyrsta umferð Bestu deildarinnar var mögnuð skemmtun. Önnur umferð deildarinnar hefst á laugardag og eru nokkrir áhugaverðir leikir á dagskrá. Sá áhugaverðasti er auðvitað viðureign Vals og Breiðabliks.
Hér fyrir neðan eru níu leikmenn, og einn þjálfari, sem verður spennandi að sjá í annarri umferð deildarinnar.
Hér fyrir neðan eru níu leikmenn, og einn þjálfari, sem verður spennandi að sjá í annarri umferð deildarinnar.
Sjá einnig:
Tíu sem vilja gleyma fyrstu umferðinni í Bestu
Arnór Borg Guðjohnsen (Víkingur R.) - Með mikla hæfileika en hefur ekki alveg náð að sýna það í Víkingsbúningnum vegna meiðsla. Var ónotaður varamaður í fyrsta leik en gæti fengið mínútur gegn sínum gömlu félögum í Fylki.
Atli Þór Jónasson (HK) - Óvænt stjarna fyrstu umferðar. Kom inn á sem varamaður og tryggði HK magnaðan sigur. Hávaxnasti leikmaður deildarinnar getur nýst Kópavogsfélaginu vel í sumar eftir að hafa spilað í 4. deild í fyrra..
Dagur Ingi Valsson (Keflavík) - Skemmtilegur leikmaður sem hefur verið sjóðandi heitur í síðustu leikjum sínum í Bestu deildinni. Hann byrjaði frábærlega gegn Fylki, skoraði og lagði upp.
Elfar Freyr Helgason (Valur) - Er að mæta uppeldisfélagi sínu í stórleik umferðarinnar. Leit mjög vel út í fyrsta leiknum gegn ÍBV og verður gaman að sjá hvernig hann fylgir því eftir.
Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan) - Er orðinn fyrirliðinn í Garðabænum en hann er að mæta sínum gömlu félögum í FH í þessari umferð. Mætir hann extra vel gíraður í þennan leik?
Hermann Hreiðarsson (ÍBV) - Verður Burt Reynolds mottan áfram til staðar þegar Eyjamenn sækja KA heim?
Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur) - Var að glíma við meiðsli í fyrstu umferð. Verður líklega klár gegn Breiðabliki og það eru frábærar fréttir fyrir varnarleik Vals.
Stefán Ingi Sigurðarson (Breiðablik) - Byrjaði á bekknum gegn HK en kom inn á og sýndi flotta takta. Líklegur til að koma inn í byrjunarliðið hjá Blikum fyrir stórleikinn gegn Val.
Tumi Þorvarsson (HK) - Köngulóarmaðurinn átti stóran þátt í sigurmarkinu gegn Breiðabliki með stórkostlegri tæklingu. Skemmtilegur karakter sem gæti látið aftur til sín taka gegn Fram.





