Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
   sun 12. maí 2013 22:11
Magnús Már Einarsson
Ejub Purisevic: Sagði þeim að skammast sín
Ejub Purisevic.
Ejub Purisevic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við spiluðum ekki illa í fyrri hálfleik, við vorum bara ekki með," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir 3-2 tap liðsins gegn Stjörnunni í kvöld.

Algjör einstefna var í fyrri hálfleik þar sem Stjarnan komst í 2-0. Ólafsvíkingar hresstus hins vegar eftir hálfleiksræðu Ejubs.

,,Ég er ekkert að fela það, ég sagði þeim að skammast sín fyrir fyrri hálfleikinn. Við komum til baka og fengum færi og það var jafnvægi í leiknum. Það er bara sorlegt að fá svona mörk á sig."

Ejub vill meina að Ólafsvíkingar hafi átt fínan möguleika á að stela stigi. ,,Ég var súr yfir því. Í stöðunni 2-1 fannst mér við geta stolið allavega einu stigi."

Næsti leikur Víkings er gegn Keflavík á fimmtudag en bæði lið eru ennþá án stiga.

,,Við erum með rosalega marga leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessari deild. Hver einasti leikur verður mjög erfiður. Ég vona að við lærum sem fyrst, lærum að fækka mistökum og spila til að fá úrslit. Ekki endilega spila fínan fótbolta eða þannig. Tíminn er naumur og við höfum ekki tíma, við verðum að læra á þessari göngu."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Við biðjumst afsökunar á smávægilegum hljóðtruflunum í vðitalinu.
Slapp
banner
banner
banner