Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 12. maí 2021 12:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Böddi löpp spáir í þriðju umferð Pepsi Max-deildarinnar
Davíð Þór
Davíð Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar löpp Böðvarsson
Böðvar löpp Böðvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Jósef Kristinn Jósefsson var með einn réttan þegar hann spáði í leikina í annarri umferð Pepsi Max-deildarinnar.

FH-ingurinn Böðvar Böðvarsson, Böddi löpp, er spámaður .net fyrir 3. umferð deildarinnar. Böddi er í dag leikmaður Helsingborg í Svíþjóð.

KA 1 - 1 Leiknir R. (Í dag klukkan 17:30)
Myndi frekar hlusta á einræðu frá holdgervingi hvíta miðaldra karlmanna í forréttindastöðu, hann Davíð Þór Viðarsson, heldur en að horfa á þennan leik.

Fylkir 0 - 4 KR (Í kvöld klukkan 19:15)
Grétar er kannski ekki hokinn af reynslu sem miðvörður en hokinn er hann engu að síður. Clean Sheet og Flóki minn með 2-3

Breiðablik 3 - 2 Keflavík (Fimmtudag klukkan 19:15)
Blikar ná einhverjum 70 sendingum áður en þeir skora og allt verður vitlaust í Kóp. Árni Vill setur 1-2 mörk og mögulega svarar símanum í kjölfarið þegar ég hringi í hann.

Stjarnan 2 - 2 Víkingur (Fimmtudag klukkan 19:15)
Aldrei líkað vel við Stjörnuna

Valur 3 - 1 HK (Fimmtudag klukkan 19:15)
Valur kemst í 3-0 en HK minnkar muninn eftir að einhver í Val mundar löppina inn í sínum eigin teig og getur ómögulega hætt við að þrykkja í boltann eins og gengur og gerist. Rautt og víti.

FH 5 - 0 ÍA (Fimmtudag klukkan 19:15)
ÍA fær loksins að mæta alvöru víkingum sem endar ekki betur en svona.

Fyrri spámenn:
Hjörvar Hafliða - 2 réttir
Jósef Kristinn - 1 réttur
Athugasemdir
banner
banner