Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. maí 2022 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Tottenham og Arsenal: Holding fær 2 - Kane bestur
Harry Kane fær 9 fyrir frammistöðuna í kvöld
Harry Kane fær 9 fyrir frammistöðuna í kvöld
Mynd: EPA
Enski framherjinn Harry Kane var besti maður vallarins er Tottenham vann Arsenal, 3-0, í nágrannaslag á Tottenham Hotspur-leikvanginum í Lundúnum í kvöld.

Kane skoraði tvö mörk fyrir heimamenn í leiknum og átti virkilega góðan leik. Hann fær 9 og þá fá þrír liðsfélagar hans 8 en það eru þeir Son Heung-Min, Ben Davies og Hugo Lloris.

Rob Holding, sem var aldrei í takt við leikinn, fékk tvö gul spjöld í fyrri hálfleik og þar með rautt. Hann fær 2 fyrir sína frammistöðu.

Tottenham: Lloris (8), Royal (7), Sanchez (7), Dier (7), Davies (8), Hojbjerg (7), Bentancur (7), Sessegnon (7), Kulusevski (7), Son (8), Kane (9).
Varamenn: Bergwijn (6), Moura (6), Rodon (n/a).

Arsenal: Ramsdale (6), Tomiyasu (5), Holding (2), Gabriel (5), Cedric (4), Xhaka (5), Elneny (6), Saka (5), Odegaard (6), Martinelli (5), Nketiah (5).
Varamenn: Lacazette (5), Smith Rowe (5), Tavares (5).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner