Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur verið valinn besti leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max-deildar karla í kosningu hér á Fótbolta.net.
Það er Origo sem verðlaunar leikmann hvers þriðjungs í Pepsi Max-deildum karla og kvenna í sumar. Lesendur Fótbolta.net fengu að velja milli fjögurra tilnefndra leikmanna og Tryggvi Hrafn fékk 47% atkvæða.
Hann fékk í verðlaun Sony bluetooth heyrnartól 1000XM3 með noise cancel frá Origo.
Valið er í samvinnu við Innkastið en sérfræðingar þáttarins tilnefndu fjóra leikmenn. Það eru leikmenn úr toppliðunum tveimur sem eru tilnefndir; Damir Muminovic og Kolbeinn Þórðarson úr Breiðabliki og Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson úr ÍA.
Þessir fjórir eru tilnefndir sem Sony leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max! Við leitum í toppliðin tvö og þú sérð um að kjósa þann besta! #fotboltinet #Innkastið
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) June 4, 2019
Athugasemdir