

Barcola skoraði 14 mörk í 34 leikjum fyrir PSG í frönsku deildinni á liðnu tímabili. Þá var hann með 3 mörk og 4 stoðsendingar í 17 Meistaradeildarleikjum.
HM félagsliða hefst um helgina en óhætt er að segja að ekki sé mikil eftirvænting í loftinu. Hér er hinsvegar slúðurpakki dagsins en Liverpool kemur mikið við sögu í pakka dagsins.
Liverpool er tilbúið að reyna við Bradley Barcola (22), sóknarleikmann Paris Saint-Germain, þó félagið hafi tryggt sér Florian Wirtz (22) frá Leverkusen. Félagið þarf þó að selja til að fjármagna kaup á Barcola og er opið fyrir tilboðum í Luis Díaz, Diogo Jota og Darwin Núnez. (Sun)
Þýski vængmaðurinn Leroy Sane (29) hefur hafnað tilboði frá Al-Hilal og samþykkt að ganga til liðs við Galatasaray eftir að viðræður um nýjan samning við Bayern München sigldu í strand. Sane er mættur til Tyrklands til að ganga frá málum. (BBC)
Aston Villa, Newcastle og Tottenham fylgjast með þróun mála hjá Jadon Sancho (25) eftir að enski vængmaðurinn snýr aftur til Manchester United að lokinni lánsdvöl hjá Chelsea. (Sun)
Everton og Newcastle eru fremst í baráttunni um að fá Jack Grealish (29) frá Manchester City í sumar. (Football Insider)
Bayer Leverkusen er að íhuga að fá Jarell Quansah (22), varnarmann Liverpool, til liðs við sig. (Athletic)
Úrúgvæski framherjinn Darwin Nunez (25) er líklegur til að yfirgefa Liverpool í sumar en Sádi-arabíska félagið Al-Hilal hefur haft samband við hann. (Talksport)
Nunez vill þó frekar vera áfram í Evrópu og áhugasamur um að fara til Spánar eða Ítalíu. (Mirror)
Athletic Bilbao vonast til að ná samkomulagi um launahækkun og framlengingu samnings spænska vængmannsins Nico Williams (22) til að fæla frá áhuga Bayern München, Arsenal og Chelsea. (Marca)
Williams hefur sagt Bayern að hann sé opinn fyrir því að fara til Þýskalands og umboðsmenn hans eru í viðræðum við Þýskalandsmeistarana. (Sky Sports Þýskaland)
Athugasemdir