Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fös 12. júní 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Ekkert fær Aftureldingu stöðvað
Kvenaboltinn
Monika var á skotskónum fyrir Aftureldingu
Monika var á skotskónum fyrir Aftureldingu
Mynd: Afturelding
Afturelding 4 - 1 ÍR
1-0 Maria Baska ('21 )
2-0 Monika Piesliakaite ('51 )
2-1 Sara Atladóttir ('52 )
3-1 Sarai Vela Menchon ('54 )
4-1 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('64 )

Afturelding er áfram með fullt hús stiga í 2. deild kvenna eftir 4-1 stórsigur á ÍR á Malbikstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ í gær.

Mosfellingar ætla sér stóra hluti í deildinni í ár og virðist ekkert ætla að stöðva liðið.

Maria Baska og Monika Piesliakaite komu þeim í 2-0 áður en Sara Atladóttir minnkaði muninn.

Afturelding gaf aftur í eftir mark ÍR-inga með tveimur mörkum á tíu mínútum. Sarai Vela Menchon og Karen Dæja Guðbjartsdóttir skoruðu mörkin, en Karen var að gera sjöunda deildarmark sitt á tímabilinu.

Frábær sigur hjá Aftureldingu, sem er í öðru sæti með fullt hús eftir fjórar umferðir, einu stigi á eftir Fjölni sem er á toppnum með fimm leiki spilaða. ÍR er í 7. sæti með fjögur stig.
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
Slapp
banner
banner