Kanada mætir Bosníu og Hersegóvínu í fyrsta leik kvöldsins á heimsmeistaramótinu. Um er að ræða opnunarleikinn í Kanada og verður heljarinnar opnunarathöfn fyrir leik.
Kanada er í fyrsta sinn gestgjafi á HM en er þetta í þriðja sinn sem þjóðin tekur þátt á mótinu. Liðið var með á síðasta heimsmeistaramóti en þar áður var Kanada með á HM í Mexíkó 1986.
Kanada er í fyrsta sinn gestgjafi á HM en er þetta í þriðja sinn sem þjóðin tekur þátt á mótinu. Liðið var með á síðasta heimsmeistaramóti en þar áður var Kanada með á HM í Mexíkó 1986.
Kanada bíður þó enn eftir sínum fyrsta sigri á mótinu, en þjóðin hefur tapað öllum sínum sex leikjum á mótinu hingað til.
Bosnía er á sínu öðru heimsmeistaramóti en liðið tók þátt í Brasilíu 2014 en komst ekki upp úr riðlinum þrátt fyrir að hafa unnið Íran í riðlakeppninni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

