Kieran Trippier, nýr leikmaður Wolves, og nokkrir liðsfélagar hans eru sagðir brjálaðir út í stjórn félagsins fyrir að hafa sparkað Rob Edwards.
Trippier var kynntur hjá Úlfunum á dögunum ásamt Raul Jimenez sem kom frá Fulham.
Stuttu eftir að Jimenez var kynntur var tilkynnt um ákvörðun félagsins að reka Edwards sem féll með liðið niður í B-deildina.
talkSPORT segir að Edwards hafi fengið fréttirnar af brottrekstrinum í gegnum samfélagsmiðla, en ekki beint frá klúbbnum.
Hann átti stóran þátt í því að fá þá Trippier og Jimenez til félagsins, en leikmennirnir eru sagðir reiðir út í stjórnina fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun. Trippier er að íhuga stöðuna og kemur til greina að rifta samningnum.
Edwards var meðal annars í myndbandinu sem var notað til að kynna Jimenez og kom þetta því eðlilega flatt upp á nýja leikmenn sem og aðra leikmenn sem voru nú þegar hluti af hópnum.
Cesar Peixoto, sem hefur stýrt portúgalska félaginu Gil Vicente síðan í mars á síðasta ári, tekur við af Edwards.



