Wolverhampton Wanderers eru búnir að staðfesta félagaskipti Kieran Trippier eftir að samningur hans við Newcastle United rennur út í lok mánaðar.
Trippier er 35 ára gamall og verður 36 ára í september en hefur enn upp á ýmislegt að bjóða enda afar gæðamikill leikmaður.
Trippier er hægri bakvörður að upplagi sem getur einnig spilað vinstra megin og býr yfir gríðarlegri reynslu. Hann ólst upp hjá Manchester City og hefur leikið fyrir Barnsley, Burnley, Tottenham og Atlético Madrid á ferlinum auk þess að eiga 54 landsleiki að baki fyrir England.
Úlfarnir þurfa á liðsstyrk að halda eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni og er Rob Edwards þjálfari mjög ánægður með nýja manninn.
„Ég er svo ánægður að fá Kieran til félagsins, það var augljóst að hann vildi koma hingað. Okkur vantar reynslumikinn leiðtoga í hópinn sem er með sterkan persónuleika og Kieran tikkar í öll boxin," segir Edwards.
„Hann var með góð tilboð frá öðrum félagsliðum en kaus að koma hingað. Við getum verið mjög stoltir af því."
Trippier á í heildina 225 úrvalsdeildarleiki að baki og 174 leiki í Championship.
29.05.2026 12:43
Trippier fer til Úlfanna
Welcome to the pack, Kieran ???? pic.twitter.com/llTgz5H0c9
— Wolves (@Wolves) June 8, 2026





