12.07.12 - 10:38
Magnús Már Einarsson
Jan Vertonghen til Tottenham (Staðfest)

Gylfi, Villas-Boas og Vertonghen.

Mynd: Heimasíða Tottenham

Gylfi, Villas-Boas og Vertonghen.

Mynd: Heimasíða Tottenham
Tottenham hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Jan Vertonghen en hann kemur til félagsins frá Ajax.
Vertonghen hefur verið lengið orðaður við Tottenham og nú hefur hann staðist læknisskoðun og skrifað undir hjá félaginu.
Vertonghen er annar leikmaðurinn sem Andre Villas-Boas fær til Tottenham á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni.
Þessi 25 ára gamli Belgi hefur leikið lykilhlutverk í vörn Ajax en hann var á síðasta tímabili valinn leikmaður tímabilsins í Hollandi.

Heimild: Heimasíða Tottenham