Fotbolti.net
12.07.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

Hayden Mullins til Birmingham (Staðfest)

Hayden Mullins.

Hayden Mullins.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fest kaup á miðjumanninum Hayden Mullins frá Portsmouth fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi fjölhæfi miðjumaður var á láni hjá Reading seinni part síðustu leiktíðar og hjálpaði félaginu til sigurs í Championship deildinni.

Á meðan féll Portsmouth og á félagið nú í virkilegum fjárhagserfiðleikum. Aul Mullins yfirgaf líka Aaron Mokoena félagið í dag og eru nú einungis 8 aðalliðsleikmenn eftir á launaskrá félagsins.

Mullins, sem er 33 ára gamall, getur einnig spilað í vörninni. Hann á að baki hátt í 400 leiki sem atvinnumaður og hafði hann verið í herbúðum Portsmouth í fjögur ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.