Fotbolti.net
12.07.12 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Hugo Rodallega til Fulham (Staðfest)

Hugo Rodallega til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kolumbíski framherjinn Hugo Rodallega hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fulham.

Rodallega kemur frítt til Fulham en samningur hans við Wigan rann út á dögunum.

Þessi 26 ára gamli leikmaður er markahæsti leikmaður Wigan í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi en hann lék með liðinu í þrjú og hálft ár.
,,Ég er í skýjunum með að hafa skrifað undir hjá Fulham,\" sagði Rodallega glaður í bragði í dag.

,,Ég vildi vera áfram á Englandi og ég er ánægður með að fá það tækifæri hjá Fulham.\"

Heimild: Heimasíða Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.