Fotbolti.net
12.07.26 - 08:45
Víðir Sigurðsson

FC Sækó sótti silfur til Þýskalands: Gríðarlega stoltur

FC Sækó með silfurverðlaunin. Frá vinstri, Jón Grétar Jónasson þjálfari, Óskar Ástvaldsson, Sigurvin Jóhannsson, Logi Rúnar Jónsson, Bergþór Grétar Böðvarsson, Daníel Þórhallsson, Aron Ísak Yngvason, Svanur Þór Halldórsson, Paa Kwesi Abew-Baidoo, Pétur Pálmi Harðarson.

FC Sækó með silfurverðlaunin. Frá vinstri, Jón Grétar Jónasson þjálfari, Óskar Ástvaldsson, Sigurvin Jóhannsson, Logi Rúnar Jónsson, Bergþór Grétar Böðvarsson, Daníel Þórhallsson, Aron Ísak Yngvason, Svanur Þór Halldórsson, Paa Kwesi Abew-Baidoo, Pétur Pálmi Harðarson.

Canon

Mynd: FC Sækó

Knattspyrnuliðið FC Sækó gerði góða ferð til Þýskalands fyrir skömmu og hreppti þar silfurverðlaunin á alþjóðlegu móti, EASI Cup 2026, sem haldið var í bænum Bad Tölz í Þýskalandi.

Þetta er í annað sinn sem FC Sækó fer á þetta mót en á síðasta ári tók liðið einnig þátt og þá var mótið haldið í Steyr í Austurríki.
EASI Cup er alþjóðlegt mót sem haldið er árlega undir merkjum European Association for Sport and Social Integration, EASI, og markmiðið með því er að nota fótbolta til þess að virkja fólk sem glímt hefur við geðheilbrigðisvandamál.

Fjórtán lið frá átta löndum tóku þátt í mótinu. Liðin mættust öll í deildarkeppni sem spiluð var á tveimur dögum og að lokum mættust tvö efstu liðin í úrslitaleik. Mótshaldarar ákváðu að sleppa undanúrslitum og styttu leiki mótsins vegna hitabylgjunnar sem reið yfir Þýskaland dagana sem mótið var haldið. Meðalhitinn var um 35 gráður á Celcius og aðstæður því afar krefjandi.

Úrslit leikja FC Sækó urðu sem hér segir:

Fyrri dagur:
FC Sækó - Steyr (Austurríki) 0-0
FC Sækó - Bad Tölz B (Þýskalandi) 2-0
FC Sækó - Karlovarský (Tékklandi) 9-0
FC Sækó - Mladá Boleslav (Tékklandi) 6-0
FC Sækó - Motspur Park B (Englandi) 3-0
FC Sækó - Bad Tölz (Þýskalandi) 1-0
FC Sækó - Frankfurter (Þýskalandi) 0-3
Seinni dagur:
FC Sækó - FC Brubmühle (Austurríki) 5-0
FC Sækó - Red Cross (Hollandi) 3-0
FC Sækó - SKpDZ/Pro Dusevni (Tékklandi/Slóvakíu) 0-2
FC Sækó - Taball-Tabor (Tékklandi) 2-0
FC Sækó - Motspur Park (Englandi) 1-0
FC Sækó - Kralji (Slóveníu) 0-1

Komnir í úrslit fyrir lokaleikinn
Lið FC Sækó var búið að tryggja sér annað sætið með harðsóttum en sanngjörnum sigri á enska liðinu Motspur Park í næstsíðustu umferð, 1-0, og hvíldi því alla þá sem voru tæpir vegna meiðsla í lokaleiknum gegn Kralji frá Slóveníu. Þeir sem spiluðu fóru sparlega með sig til að vera klárir í úrslitaleikinn gegn heimamönnum í Bad Tölz.

Bad Tölz fékk 34 stig úr leikjunum þrettán, FC Sækó fékk 28 stig og Motspur Park og Steyr komu þar á eftir með 27 stig hvort.

Úrslitaleikur FC Sækó og Bad Tölz var jafn og spennandi. Heimamenn komust yfir með góðu langskoti undir lok fyrri hálfleiks. Sækómenn sóttu stíft í seinni hálfleik en skotin rötuðu ekki á mark Þjóðverjanna sem fögnuðu þar með sigri, 1-0.

Lögðu mikið á sig
“Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri liðsins að hafa komist í úrslitaleik í fyrsta skipti í sögunni og er rosalega ánægður með hve vel okkur gekk að mynda sterka liðsheild. Menn lögðu mikið á sig og voru duglegir í undirbúningi fyrir mótið. Liðið small vel saman á mótinu og árangurinn er eftir því og er verðskuldaður,” sagði Jón Grétar Jónasson þjálfari FC Sækó.
Leikmenn FC Sækó við setningarathöfn mótsins.

Leikmenn FC Sækó við setningarathöfn mótsins.

Canon

Mynd: FC Sækó

Leikmenn FC Sækó við setningarathöfn mótsins.

Leikmenn FC Sækó við setningarathöfn mótsins.

Canon

Mynd: FC Sækó

Lið FC Sækó og Bad Tölz ganga til úrslitaleiksins.

Lið FC Sækó og Bad Tölz ganga til úrslitaleiksins.

Canon

Mynd: FC Sækó

Frá úrslitaleik FC Sækó og Bad Tölz.

Frá úrslitaleik FC Sækó og Bad Tölz.

Canon

Mynd: FC Sækó

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.