HM: England tryggði sér sæti í undanúrslitum eftir ótrúlegan leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Noregur 1 - 2 England
1-0 Andreas Schjelderup ('36 )
1-1 Jude Bellingham ('45 )
1-2 Jude Bellingham ('93 )
1-0 Andreas Schjelderup ('36 )
1-1 Jude Bellingham ('45 )
1-2 Jude Bellingham ('93 )
England er komið í undanúrslit á HM eftir sigur á Noregi í ótrúlegum leik.
England fékk gott færi rétt fyrir vatnspásuna en sendingin fyrir markið frá Noni Madueke var fyrir aftan Nico O'Reilly sem náði ekki tökum á boltanum.
Jordan Pickford varði skalla frá Erling Haaland eftir rúmlega hálftíma leik en stuttu síðar komust Norðmenn yfir. Andreas Schjelderup var í góðri fyrirgjafarstöðu en hann setti boltann yfir Jordan Pickford og hann fór í stöngina og inn.
Englendingar voru ekki sáttir þar sem þeir töldu að það hafi verið brotið á Harry Kane í aðdragandanum en ekkert dæmt.
Jude Bellingham jafnaði metin í uppbótatíma fyrri hálfleiks þegar hann kom sér inn á teiginn og skoraði framhjá Örjan Nyland. Norðmenn töldu markið ólöglegt þar sem boltinn fór í vír sem heldur myndavélunum uppi í aðdragandanum en það var ekki skoðað.
Kane skoraði stuttu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu. 1-1 í hálfleik.
Torbjörn Heggem skoraði fyrir Norðmenn eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik eftir hornspyrnu en markið var dæmt af þar sem Erling Haaland hrinti Elliot Anderson.
Kristoffer Ajer var nálægt því að koma Norðmönnum yfir þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en hann átti skalla í slá.
Fleiri mörk urðu ekki skoruð og því þurfti að framlengja.
Bellingham kom Englandi yfir snemma í framlengingunni. Morgan Rogers átti skot sem Nyland varði út í teiginn og Bellingham mætti og setti boltann í netið.
England fékk vítaspyrnu stuttu síðar þegar Djed Spence féll í teignum eftir viðskipti við Oscar Bobb. Clément Turpin, dómari leiksins, fór í skjáinn og sá að Spence setti fótinn fyrir Bobb og dró dóminn til baka.
Það kom ekki að sök fyrir Englendinga sem fóru með sigur af hólmi. England mætir sigurvegaranum í leik Argentínu og Sviss í undanúrslitum. Argentína og Sviss mætast klukkan eitt í nótt.