Fotbolti.net
12.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrsti leikurinn hjá Freysa í dag

Fyrsti leikurinn hjá Freysa í dag
Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson tók við sem þjálfari norska félagsins Rosenborg í síðasta mánuði.

Hann stýrði liðinu í fyrsta sinn í æfingaleik þegar liðið vann Molde 2-1 fyrir viku síðan.
Norska deildin hófst aftur í gær eftir rúmlega mánaðar frí og lærisveinar Freys mæta til leiks í dag.

Rosenborg fær Kristiansund í heimsókn í Íslendingaslag. Rosenborg situr í 15. og næst neðsta sæti og er tveimur stigum á eftir Kristiansund sem situr í 14. sæti. Júlíus Mar Júlíusson og Hrannar Snær Magnússon eru leikmenn Kristiansund.

Brann, fyrrum lærisveinar Freys, með Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon innanborðs, fá Start í heimsókn. Viðar Ari Jónsson og félagar í HamKam heimsækja Sandefjord. Viking fær Sarpsborg í heimsókn.

Amin Cosic gekk til liðs við Viking frá KR í síðustu viku en hann fær leikheimild eftir leik dagsins.

Noregur: Eliteserien
12:30 KFUM Oslo - Bodö/Glimt
15:00 Rosenborg - Kristiansund
15:00 SK Brann - Start
15:00 Sandefjord - Ham-Kam
17:15 Sarpsborg - Viking FK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.