Fotbolti.net
11.07.26 - 22:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mark dæmt af Noregi - Rooney segir að England hafi sloppið með skrekkinn

Mark dæmt af Noregi - Rooney segir að England hafi sloppið með skrekkinn
Canon

Mynd: EPA

Það er mikil spenna í leik Noregs og Englands í 8-liða úrslitum á HM í kvöld. Staðan er 1-1 þegar um tuttugu mínútur eru til loka venjulegs leiktíma.

Andreas Schjelderup kom Noregi yfir en margir bjuggust við því að hann myndi senda boltann fyrir en hann setti boltann yfir Jordan Pickford og í stöngina og inn.
Englendingar voru ósáttir með markið þar sem þeir töldu að brotið hafi verið á Harry Kane í aðdragandanum en ekkert dæmt. Jude Bellingham jafnaði metin í blálok fyrri hálfleiks.

Torbjörn Heggem skoraði fyrir Noreg á 55. mínútu eftir hornspyrnu en markið var dæmt af þar sem Elliot Anderson féll eftir viðskipti við Erling Haaland.

„Englendingar voru mjög heppnir [með þessa ákvörðun]. Fyrir mér er þetta ekki brot. England mun taka þessu en ég tel að þetta sé brot," sagði Wayne Rooney, sérfræðingur á BBC og fyrrum landsliðsmaður Englands.

Sjáðu atvikið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.