Fotbolti.net
11.07.26 - 17:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maggi eftir stórsigur: Eigum ennþá meira inni

Auglýsing
Maggi eftir stórsigur: Eigum ennþá meira inni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Afturelding vann stórsigur á Völsungi á Húsavík í dag. Fótbolti.net ræddi við Magnús Már Einarsson, þjálfara Aftureldingar, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Völsungur 1 - 6 Afturelding
„Þetta var góð liðsframmistaða og góð liðsheild. Það var hellingur sem við gerðum vel og hellingur af hlutum sem við hefðum getað gert betur," sagði Maggi.

„Völsungur hefði getað skorað fleiri mörk. Arnar (Daði Jóhannesson) stóð sig frábærlega í markinu, eins og hann hefur gert í sumar, og bjargaði okkur nokkrum sinnum. Völsungur hefur verið á góðu skriði að undanförnu, það er erfitt að koma hingað svo við vorum ánægðir að ná í þessi þrjú stig."

Afturelding er með fjögurra stiga forystu á toppi Lengjudeildarinnar og það er skýrt markið liðsins að vinna deildina.

„Það er markmiðið og hefur verið frá byrjun. Við vitum að það er nóg eftir. Við þurfum að vera klárir í hvern einasta leik, það hefur gengið vel að undanförnu en við eigum ennþá meira inni og viljum meira," sagði Maggi.

Liðið er einni komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Það er því gott að vera Mosfellingur í dag.

„Já. Frábær stuðningur í dag. Mikið af stuðingsmönnum sem fylgdu okkur, það hjálpar okkur mikið. Vonandi verður það líka upp á teningnum á móti Leikni á fimmtudaginn. Það er búið að vera gott skrið á okkur og við þurfum að halda því áfram. Vonandi kemur fólkið með okkur í Mosfellsbæinn og við fáum góða mætingu á Malbiksstöðina á fimmtudaginn," sagði Maggi.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.16+2033
2Fylkir16+1233
3Afturelding15+1931
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta15+425
7Vestri16-821
8Leiknir R.16-519
9ÍR17-819
10Grindavík16-417
11Völsungur16-1711
12Ægir17-258
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.