Metþátttaka íslenskra liða á Helsinki Cup - Selfoss og HK fögnuðu sigri

Mynd: Helsinki Cup

Mynd: Helsinki Cup
Íslensk knattspyrnufélög settu nýtt þátttökumet á Helsinki Cup sem er að ljúka í Helsinki núna um helgina, en aldrei áður hafa fleiri íslensk lið tekið þátt í þessu virta alþjóðlega unglingamóti.
Helsinki Cup er eitt stærsta og þekktasta knattspyrnumót Evrópu fyrir börn og unglinga. Mótið fagnaði 50 ára afmæli sínu á síðasta ári og laðar ár hvert að þúsundir ungra knattspyrnumanna og -kvenna frá fjölmörgum löndum.

Íslensku liðin stóðu sig afar vel og tvö þeirra fögnuðu sigri í sínum aldursflokkum. Selfoss varð meistari í flokki drengja 15–16 ára, en HK sigraði í 3. flokki kvenna eftir glæsilega frammistöðu.
Visitor ferðaskrifstofa, sem er einkaleyfishafi Helsinki Cup á Íslandi, var sem fyrr umsvifamesta ferðaskrifstofan á mótinu. Á vegum fyrirtækisins tóku þátt hátt í 500 keppendur frá íslenskum félögum, auk fjölmargra fjölskyldumeðlima sem ferðuðust með liðunum.
„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá þátttöku íslenskra liða aukast ár frá ári. Helsinki Cup er einstök upplifun fyrir unga iðkendur, bæði innan vallar og utan, og árangur íslensku liðanna í ár sýnir enn og aftur þann öfluga grunn sem íslensk knattspyrna býr yfir,“ segir Sigurður Hlöðversson hjá Visitor ferðaskrifstofu.
Undirbúningur fyrir Helsinki Cup 2027 er þegar hafinn og búist er við áframhaldandi miklum áhuga íslenskra félaga á þátttöku í mótinu.