banner
   mið 12. ágúst 2020 22:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Getum ekki tapað, getum ekki farið heim svona"
Hetja PSG.
Hetja PSG.
Mynd: Getty Images
„Þetta var frekar klikkaður leikur," sagði hetja Paris Saint-Germain, Eric Maxim Choupo-Moting, eftir 2-1 sigur á Atalanta í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Það höfðu ekki margir trú á Choupo-Moting þegar hann var settur inn á sem varamaður til að reyna að hjálpa PSG að komst áfram í stöðunni 1-0 fyrir Atalanta. Hann gerði sér hins vegar lítið fyrir og skoraði sigurmarkið.

„Þetta var erfiður leikur gegn erfiðum mótherja. Þetta var ekki auðvelt. Neymar átti ótrúlegan leik en skoraði því miður ekki."

„Þegar ég kom inn á, þá hugsaði ég með mér: 'Við getum ekki tapað, við getum ekki farið heim svona'. Ég hafði trú á sjálfum mér og liðinu. Við höfum unnið fjóra titla en þessi er sá mikilvægasti."

„Við trúm á sjálfa okkur. Það vita allir að við erum með frábæra einstaklinga en við vildum sýna að þetta er lið. Ég er mjög ánægður með það sem við gerðum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner