Fotbolti.net
12.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Burnley fær miðvörð á láni frá Man City

Burnley fær miðvörð á láni frá Man City
Canon

Mynd: EPA

Burnley er að krækja í enska miðvörðinn Max Alleyne á láni frá Manchester City.
Fabrizio Romano greinir frá því að Burnley hafi náð samkomulagi við Manchester City um að fá hinn 21 árs gamla Alleyne að láni út tímabilið. Ekkert kaupákvæði verður í samningnum.

Alleyne þreytti frumraun sína með aðalliði City á síðustu leiktíð og lék alls sjö leiki og skoraði eitt mark undir stjórn Pep Guardiola.

Varnarmaðurinn fær nú tækifæri til að halda áfram að þroskast hjá Burnley sem leikur í B-deildinni á komandi tímabili eftir fall úr úrvalsdeildinni í vor.

Alleyne gengst undir læknisskoðun hjá Burnley í dag og verður síðan kynntur til leiks hjá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.