Fotbolti.net
12.08.26 - 08:55
Elvar Geir Magnússon

Chavarria til Chelsea (Staðfest)

Chavarria fékk sér kaffibolla eftir að hafa skrifað undir.

Chavarria fékk sér kaffibolla eftir að hafa skrifað undir.

Canon

Mynd: Chelsea

Vinstri bakvörðurinn Pep Chavarria hefur verið formlega kynntur sem leikmaður Chelsea. Þessi 28 ára leikmaður hefur síðustu fjögur ár verið hjá Rayo Vallecano á Spáni.

Ferill hans er áhugaverður en hann lék lengi í neðri deildum Spánar og skaust seint fram á sjónarsviðið. Hann lék í fyrsta sinn í efstu deild á Spáni 24 ára gamall.

Búið er að að ganga frá kaupum Chelsea fyrir rúmlega 16 milljónir punda, með möguleika á hækkun eftir ákvæðum.

Chavarria er vinstri bakvörður sem er í miklum metum hjá Xabi Alonso, stjóra Chelsea, eftir að hafa mætt honum þegar hann stýrði Real Madrid á síðasta tímabili.

Bláliðar hafa verið að vinna í því að landa Chavarria í u.þ.b. mánuð en viðræður gengið hægt. Chavarria lét það skýrt í ljós við vinnuveitendur sína hjá Rayo að hann vildi fara á Stamford Bridge.

Hann kemur með aukna breidd í vinstri bakvarðarstöðuna eftir að Marc Cucurella var seldur til Real Madrid í sumar.

„Ég er svo spenntur að byrja. Þetta er draumur fyrir mig þar sem Chelsea er eitt stærsta félag í heimi. Þetta er stórt tækifæri en ég er undirbúinn og mun vinna hörðum höndum að því að hjálpa liðinu að ná árangri," segir Chavarria.
Í leik með Rayo Vallecano.

Í leik með Rayo Vallecano.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.