12.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hollywood-liðið sækir markvörð frá Sunderland (Staðfest)

Mynd: Wrexham AFC

Mynd: Wrexham AFC
Wrexham, sem er í eigu Hollywood-leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney, hefur fest kaup á enska leikmanninum Anthony Patterson frá Sunderland.
Patterson er fjórði leikmaðurinn sem Wrexham fær í sumar en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið í gær.
Hinn 26 ára gamli markvörður var í herbúðum Sunderland í 17 ár og lék alls 169 leiki fyrir aðalliðið. Hann tók meðal annars þátt í tveimur úrslitaleikjum umspils, fyrst um sæti í B-deildinni og síðar í ensku úrvalsdeildinni.
„Wrexham fellur mjög vel að framtíðaráætlunum mínum og því fannst mér þetta fullkomið skref.“
„Ég hef fylgst með vegferð félagsins og það er spennandi að fá að taka þátt í henni. Ég vil spila með Wrexham í ensku úrvalsdeildinni og tel félagið hafa allt til brunns að bera til að komast þangað.“
„Ég get ekki beðið eftir að spila fyrir framan stuðningsmennina, hjálpa liðinu upp töfluna og koma félaginu þangað sem það á heima,“ sagði Patterson.

We are delighted to announce the signing of goalkeeper Anthony Patterson from Sunderland AFC for an undisclosed fee.
— Wrexham AFC (@Wrexham_AFC) August 11, 2026
?????? #WxmAFC