Fotbolti.net
12.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Ráðleggja hollenska landsliðsmanninum að finna sér nýtt félag

Ráðleggja hollenska landsliðsmanninum að finna sér nýtt félag
Canon

Mynd: EPA

Þýska félagið RB Leipzig hefur ráðlagt hollenska landsliðsmanninum Lutsharel Geertruida að finna sér nýtt félag áður en glugginn lokar.
Geertruida lék með Sunderland á láni frá Leipzig á síðustu leiktíð og ræddi við enska félagið um að vera áfram.

Sunderland ákvað hins vegar að virkja ekki kaupákvæðið í samningi þessa fjölhæfa varnarmanns.

Sky segir Leipzig hafa ráðlagt Geertruida að finna sér nýtt félag. Þjóðverjarnir vilja helst selja hann en annað lán kemur einnig til greina.

Geertruida var kallaður inn í hollenska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í sumar eftir að Jurrien Timber meiddist.

Hann hefur áður verið orðaður við Arsenal og Liverpool en nú er líklegast að hann snúi aftur heim til Hollands.

Feyenoord og PSV hafa bæði mikinn áhuga. PSV virðist þó vera með forystuna þrátt fyrir að Geertruida sé uppalinn hjá Feyenoord og hafi hafið atvinnumannaferilinn þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.