12.08.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópa í dag - Aston Villa og PSG mætast í Ofurbikarnum

PSG spilar í Ofurbikarnum annað árið í röð

Mynd: EPA

Aston Villa vann Evrópudeildina í vor

Aston Villa og Paris Saint-Germain mætast í leiknum um Ofurbikar Evrópu klukkan 19:00 í Salzburg í Austurríki í kvöld.
Aston Villa vann Evrópudeildina í vor en Paris Saint-Germain varð Evrópumeistari annað árið í röð.
PSG tekur því þátt í Ofurbikar Evrópu annað árið í röð. Í fyrra hafði liðið betur gegn Tottenham eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.
Þetta er í þriðja sinn sem PSG leikur um Ofurbikarinn. Félagið hefur unnið hann einu sinni en tapaði einnig fyrir Juventus árið 1996.
Aston Villa tekur þátt í annað sinn en enska félagið vann bikarinn árið 1982.
Einnig verður leikið í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld. Íslendingalið FCK mætir Debrecen frá Ungverjalandi og er með annan fótinn í umspilinu eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.
Viktor Bjarki Daðason, Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen eru allir á mála hjá FCK.
Leikir dagsins:
Ofurbikar Evrópu
19:00 PSG - Aston Villa
Forkeppni Sambandsdeildarinnar:
16:00 FCK - Debrecen
16:00 Katowice - Hapoel Tel Aviv
16:00 Rapid - Paide