Fotbolti.net
12.12.24 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópudeildin: Orri Steinn snéri aftur á völlinn - Tottenham í vandræðum

Evrópudeildin: Orri Steinn snéri aftur á völlinn - Tottenham í vandræðum
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham er án sigurs í fimm síðustu leikjum í öllum keppnum eftir jafntefli gegn Rangers í Skotlandi í Evrópudeildinni í kvöld.
Það var markalaust í hálfleik en Hamza Igamane kom Rangers yfir snemma í seinni hálfleik. James Tavernier átti sendingu inn á teiginn og Igamane komst auðveldlega framhjá Pedroo Porro og skoraði.

Dejan Kulusevski kom inn á sem varamaður í hálfleik og Dominic Solanke kom inn á eftir klukkutíma leik. Þeir unnu vel saman þegar Kulusevski tókst að jafna metin.

Í kjölfarið náði Tottenham góðum tökum á leiknum en Rangers komst í dauðafæri undir lok leiksins þegar Fraser Forster varði gríðarlega vel frá Cyriel Dressers. Hann kom síðan boltanum í netið stuttu síðar en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Orri Steinn Óskarsson spilaði í rúmlega hálftíma þegar Real Sociedad lagði Dynamo Kiev en þetta var fyrsti leikurinn hans síðan hann meiddist í landsleik gegn fyrir mánuði síðan.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom ekkert við sögu þegar Ajax tapaði gegn Lazio. Elías Rafn Ólafsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla á hendi í tapi Midtjylland gegn Porto. Eggert Aron Guðmundsson og Andri Fannar Baldursson voru ekki með Elfsborg sem lagði Qarabag af velli.

Ajax 1 - 3 Lazio
0-1 Loum Tchaouna ('12 )
1-1 Bertrand Traore ('47 )
1-2 Fisayo Dele-Bashiru ('52 )
1-3 Pedro ('77 )

Bodo-Glimt 2 - 1 Besiktas
0-1 Gedson Fernandes ('21 )
1-1 Philip Zinckernagel ('37 )
2-1 Odin Luras Bjortuft ('43 )

Elfsborg 1 - 0 Qarabag
1-0 Ahmed Qasem ('57 )

Porto 2 - 0 Midtjylland
1-0 Danny Namaso ('30 )
2-0 Samu Omorodion ('56 )
2-1 Adam Buksa ('90 )

Lyon 3 - 2 Eintracht Frankfurt
0-1 Ansgar Knauff ('18 )
1-1 Rayan Cherki ('27 )
2-1 Malick Fofana ('50 )
3-1 Ernest Nuamah ('54 )
3-2 Omar Marmoush ('85 )

Maccabi Tel Aviv 2 - 1 Rigas FS
1-0 Idan Nachmias ('16 )
1-1 Roberts Savalnieks ('52 )
2-1 Nemanja Stojic ('69 )

Rangers 1 - 1 Tottenham
1-0 Hamza Igamane ('47 )
1-1 Dejan Kulusevski ('75 )

Real Sociedad 3 - 0 Dynamo K.
1-0 Mikel Oyarzabal ('19 )
1-0 Mikel Oyarzabal ('19 , Misnotað víti)
2-0 Sheraldo Becker ('24 )
3-0 Mikel Oyarzabal ('33 )

Slavia Praha 1 - 2 Anderlecht
0-1 Nilson Angulo ('8 )
0-2 Yari Verschaeren ('31 )
1-2 Tomas Chory ('58 )
Evrópudeildin: Orri Steinn snéri aftur á völlinn - Tottenham í vandræðum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.