Fotbolti.net
13.01.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Demiral fer ekkert í janúar - Meiddist illa gegn Roma

Merih Demiral í leik með Juventus

Merih Demiral í leik með Juventus

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneski varnarmaðurinn Merih Demiral meiddist illa í 2-1 sigri Juventus á Roma í gær en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið síðustu daga.
Demiral kom Juventus yfir í byrjun leiksins áður en Cristiano Ronaldo tvöfaldaði forystuna nokkrum mínútum síðar.

Varnarmaðurinn knái meiddist þó illa þegar um það bil tuttugu mínútur voru búnar af leiknum og þurfti að bera hann af velli en Maurizio Sarri, þjálfari Juventus, telur meiðslin af alvarlegum toga.

„Demiral tognaði og við vitum ekki meira fyrr en á morgun. Við höfum þó á tilfinningunni að þetta gætu verið alvarleg meiðsli," sagði Sarri.

Leicester City hefur sýnt Demiral mikinn áhuga síðustu daga en það er útlit fyrir það að hann verði áfram í herbúðum Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.