Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. mars 2020 11:37
Elvar Geir Magnússon
Juventus: Dybala ekki með veiruna
Mynd: Getty Images
Juventus hefur gefið það út að fréttir þess efnis að Paulo Dybala sé með kórónaveiruna séu rangar.

Juventus segir að Dybala hafi ekki greinst með COVID-19.

Daniele Rugani, varnarmaður Juventus, greindist með veiruna og er allur leikmannahópur Juventus, þar á meðal Dybala, í sóttkví.

Ekkert er spilað í stærstu deildum Evrópu um þessar mundir vegna heimsfaraldursins en ástandið er verst á Ítalíu af öllum Evrópulöndum.
Athugasemdir
banner