Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 23:46
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Leeds: Okafor maður leiksins
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester United tók á móti Leeds United í lokaleik 32. umferðar enska úrvalsdeildartímabilsins og tapaði óvænt á Old Trafford eftir sex sigra í röð á heimavelli undir stjórn Michael Carrick.

Noah Okafor skoraði bæði mörk Leeds í fyrri hálfleik og urðu lokatölur 1-2. Hann er maður leiksins hjá Sky Sports og fær 8 í einkunn fyrir sinn þátt.

Liðsfélagi hans Jaden Bogle, sem átti góðan leik í hægri vængbakverði, fær sömu einkunn.

Senne Lammens markvörður var besti leikmaður heimamanna með 8 í einkunn fyrir frábærar markvörslur í fyrri hálfleiknum.

Lisandro Martínez átti flottan leik en fékk að líta beint rautt spjald í síðari hálfleik fyrir að toga í hárið á Dominic Calvert-Lewin og endar með 5 í einkunn.

Man Utd: Lammens (8), Mazraoui (6), Yoro (5), Martinez (5), Shaw (5), Ugarte (5), Casemiro (6), Fernandes (6), Cunha (6), Amad (6), Sesko (6).
Varamenn: Dalot (6), Mbeumo (6).

Leeds: Darlow (7), Justin (7), Struijk (7), Bijol (7), Gudmundsson (7), Ampadu (6), Tanaka (7), Bogle (8), Aaronson (7), Okafor (8), Calvert-Lewin (7).
Varamenn: Gnonto (5), Gruev (5).

   13.04.2026 22:18
Carrick fokillur: Ein versta ákvörðun sem ég hef séð

Slapp
banner
banner