Fyrsti sigurinn í 40 ár
Daniel Farke var brosandi eftir óvæntan sigur Leeds United gegn nágrönnum sínum í Manchester United á Old Trafford í kvöld.
Leeds var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik og komst í tveggja marka forystu. Man Utd tók völdin á vellinum í síðari hálfleik og virtist eflast við það að missa Lisandro Martínez af velli með beint rautt spjald. Rauðu djöflarnir sóttu stfít og náðu að minnka muninn en jöfnunarmarkið leit aldrei dagsins ljós. Lokatölur 1-2.
„Það var mikill léttir að heyra í lokaflautinu. Ég er mjög þreyttur eftir þennan leik, ég er stoltur af strákunum. Þetta var stórkostleg frammistaða á mikilvægum tímapunkti. Við vorum magnaðir í fyrri hálfleik og áttum að leiða með meira heldur en tveimur mörkum í leikhlénu," sagði Farke.
„Rauð spjöld geta breytt leikjum og strákarnir gerðu vel að þrauka til leiksloka. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn í sögu úrvalsdeildarinnar sem við vinnum á þessum velli. Ég held að þetta sé fyrsti sigurinn okkar hér í 40 ár."
Þetta var afar dýrmætur sigur fyrir Leeds sem er núna sex stigum frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni þegar sex umferðir eru eftir af tímabilinu.
„Við erum ekki fullkomið lið en við erum á góðri leið. Við þurfum að halda okkur auðmjúkum og halda einbeitingunni á markmiðum tímabilsins. Við eigum ennþá möguleika á því að afreka eitthvað sérstakt."
Markmið Leeds er að forðast fall en liðið er einnig komið í undanúrslit enska bikarsins þar sem Chelsea verður næsti andstæðingur.
Michael Carrick þjálfari Man Utd var gríðarlega ósáttur með dómgæsluna í leiknum en Farke neitaði að tjá sig mikið um hana.
„Ég er ekki búinn að sjá þetta en ég heyrði að hann hafi fengið rautt fyrir að rífa í hár. Ég hafði áhyggjur útaf því að við vorum á góðum tímapunkti þegar þetta atvik átti sér stað og stundum getur rautt spjald breytt orkunni á vellinum eins og gerðist í kvöld. Ég hefði frekar viljað spila áfram með 11 menn gegn 11 en svona fór þetta. Við unnum sem betur fer að lokum og ég get ekki kvartað.
„Við erum með 36 stig en við erum búnir að spila betur en það á tímabilinu. Við ættum að vera með meira en 40 stig miðað við frammistöðurnar okkar. Núna þurfum við bara nokkur stig í viðbót til að ná okkar markmiði."
13.04.2026 22:18
Carrick fokillur: Ein versta ákvörðun sem ég hef séð



