Fotbolti.net
13.04.26 - 14:48
Elvar Geir Magnússon

Robertson nálægt samkomulagi við Tottenham

Andy Robertson.

Andy Robertson.

Canon

Mynd: EPA

Andy Robertson, leikmaður Liverpool, er kominn langt í viðræðum við Tottenham um að ganga í raðir Lundúnafélagsins á frjálsri sölu þegar samningur hans rennur út í sumar.

Tottenham hefur lengi haft áhuga á þessum 32 ára vinstri bakverði og reyndi að kaupa hann í janúarglugganum en Liverpool var ekki tilbúið að hleypa honum í burtu.

Breska ríkisútvarpið segir að samkomulag Robertson sé ekki í höfn en viðræður séu langt komnar. Samkomulagið velti hinsvegar á því að Tottenham haldi sér í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham er í átjánda sæti deildarinnar og i fallsæti, tveimur stigum frá West Ham sem er í sautjánda sæti.

Tottenham vill fá inn reynslu og leiðtogahæfileika í leikmannahóp sinn.
Romero með tárin í augunum er hann yfirgaf völlinn
TENGT EFNI

Romero með tárin í augunum er hann yfirgaf völlinn

Það má svo fylgja að argentínski varnarmaðurinn Cristian Romero fer í myndatöku í dag þar sem í ljós mun koma hversu slæm hnémeiðslin eru sem hann hlaut í tapinu gegn Sunderland í gær.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.