Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. maí 2022 18:30
Victor Pálsson
Kveðja frá Ronaldo spiluð í klefanum fyrir sigur í úrslitaleiknum
Garnacho er hetjan og er hér til hægri.
Garnacho er hetjan og er hér til hægri.
Mynd: Getty Images

Manchester United er sigurvegari FA bikarsins á Englandi í flokki U18 en liðið vann Nottingham Forest á Old trafford í vikunni.


Alejandro Garnacho átti stórleik fyrir Man Utd í þessari viðureign enn hann er talinn gríðarlegt efni og komst á blað ásamt Rhys Bennett í sigrinum.

Enskir miðlar fjalla nú um það að leikmannahópur Man Utd hafi fengið öflug skilaboð fyrir leikinn og frá engum öðrum en Cristiano Ronaldo.

Ronaldo sendi strákunum góða kveðju og skilaboð fyrir leikinn en hann er leikmaður aðalliðs Man Utd og talinn einn besti leikmaður sögunnar.

67 þúsund manns mættu á Old Trafford til að sjá sigur liðsins og voru orð Ronaldo væntanlega hvetjandi fyrir svo unga og efnilega leikmenn.

Manchester Evening News segir að þessi kveðja hafi verið spiluð í búningsklefanum fyrir leik en hvað var sagt er ekki gefið upp í smáatriðum.

Garnacho er sjálfur mikill aðdáandi Ronaldo og bauð upp á einkennisfagn Portúgalans í einu af tveimur mörkum sínum.


Athugasemdir
banner
banner
banner