Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Líst gríðarlega vel á að mæta fyrrum liðsfélögum í FH"
Spilaði 13 leiki í Lengjudeildinni í fyrra og hefur spilað fyrstu þrjá leikina í ár.
Spilaði 13 leiki í Lengjudeildinni í fyrra og hefur spilað fyrstu þrjá leikina í ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Var hjá FH á árunum 2022-24.
Var hjá FH á árunum 2022-24.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen var þjálfari FH 2022 þegar FH fékk Bjarka yfir.
Eiður Smári Guðjohnsen var þjálfari FH 2022 þegar FH fékk Bjarka yfir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Maður finnur strax að hann veit hvað hann vill'
'Maður finnur strax að hann veit hvað hann vill'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir tekur á móti FH á morgun í lokaleik 16-liða úrslitanna í Mjólkubikar karla. Leikurinn hefst fram á Tekk-vellinum í Árbæ og hefst 15:00.

Bjarki Steinsen Arnarsson (2005) er leikmaður Fylkis en bakvörðurinn þekkir ágætlega til hjá FH eftir að hafa verið í Hafnarfirðinum 2022-24. Hann var á sínum tíma valinn í æfingahópa U17 og U18 og var nokkrum sinnum í leikmannahópi FH á tíma sínum í Kaplakrika en spilaði ekki í Bestu deildinni. Hann skipti svo aftur til uppeldisfélagsins, Fylkis, fyrir tímabilið í fyrra.

„Mér líst bara gríðarlega vel á að mæta fyrrum liðsfélögum í FH, þeir eru mjög spennandi og áhugavert lið í uppbyggingu og við vitum að þetta verður krefjandi verkefni. Ég býst við hörkuleik, held hann eigi eftir að verða mjög opinn og líflegur."

„Við þurfum heldur betur að koma vel gíraðir inn í þennan leik, halda áfram að byggja ofan á hlutina, mæta með rétt hugarfar, vinna grunnvinnuna, vera skipulagðir og nýta færin þegar þau koma,"
segir Bjarki.

Fór í FH en sneri aftur til að spila meistaraflokksbolta
Hvernig kom til í fyrir rúmu ári að þú fórst í Fylki frá FH og hvernig kom til á sínum tíma að þú fórst frá Fylki til FH?

„Upprunalega fer ég úr Fylki 2022 vegna þess að ég var ekki að fá þau tækifæri sem mér fannst ég eiga skilið. Á sama tíma hafði FH áhuga á að fá mig þegar Eiður Smári var að stýra liðinu. Ég átti svo mjög góð ár hjá FH sem ég er mjög þakklátur fyrir, bæði mjög skemmtileg og lærdómsrík ár, en mig vantaði hreinlega bara spilatíma í meistaraflokki og leitaði þá bara aftur heim í Fylki."

„Já, ég er klárlega að fara að mæta góðum vinum á fimmtudag."


Hafði aldrei lent í álíka atviki
Hvernig leið þér í vetur þegar leikur liðanna í Lengjubikarnum var flautaður af?

„Þetta var auðvitað mjög spes leikur og ég hafði aldrei lent í svona atviki áður. Ég hefði nú alveg skilið það ef að leikurinn hefði verið flautaður af á 35. mínútu, en dómararnir tóku ákvörðun um að klára hálfleikinn og meta stöðuna svo. Svo mæta þeir náttúrulega ekki út í seinni þegar búið var að moka völlinn, sem er bara ákvörðun sem þeir voru löngu búnir að taka og maður verður bara að bera virðingu fyrir henni."

Kemur með sigurhugarfar
Hvernig finnst þér Heimir hafa komið inn í þetta hjá ykkur?

„Heimir hefur bara komið mjög vel inn í þetta hjá okkur. Hann kemur með gríðarlega reynslu og þetta “winning mentality” og maður finnur strax að hann veit hvað hann vill. Ég þekki nú til hans frá mínum tíma í FH, hann er mjög skýr í sínum áherslum, með gott skipulag, aga og að áhersla á að allir viti sín hlutverk innan hópsins."

Mikil vonbrigði í fyrra
Hvað fannst þér vanta upp á í fyrra svo gengið yrði betra?

„Tímabilið í fyrra var náttúrulega mjög mikil vonbrigði og ég á mjög erfitt með að segja hvað klikkaði. Mér fannst við hreinlega bara ekki finna takt í okkar leik og þegar hlutirnir urðu erfiðir þá fóru allir bara í sitt horn og það varð engin samheldni í liðinu."

Þurfa læra fljótt af mistökunum
Hvernig líður þér með byrjunina hjá ykkur á tímabilinu?

„Mér líður bara ágætlega með byrjunina á tímabilinu, við erum með flottan hóp, samblöndu af góðum leikmönnum sem vilja vinna leikina. Sanngjarnt eða ekki sanngjarnt að vera með 6 stig, það er eitthvað sem ég pæli ekkert í, en eins og staðan er þá förum við bara inn í hvern leik með það hugarfar að sækja þrjá punkta."

„Við misstum mann af velli á móti Njarðvík en vorum okkur sjálfir verstir að mæta þeim litlir til baka. Við þurfum bara að læra fljótt af mistökunum og halda áfram."


Bullandi trú á að það séu bjartari tímar framundan hjá FH
Hvernig sér byrjun FH á sínu tímabili við þér?

„Þetta hefur farið mjög brösuglega á stað hjá þeim en eins og ég sagði þá er þetta lið í uppbyggingu, þeir eru að prufa nýjar leiðir og aðferðir og ég hef bullandi trú á því að það séu bjartari tímar framundan hjá FH-ingum," segir Bjarki að lokum.
Slapp
banner