Fotbolti.net
13.06.26 - 17:35
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Einar Guðna: Þetta leit hræðilega út

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Einar Guðnason, þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Já, svekktur með tapið, sérstaklega að þetta hafi endað svona stórt,“ sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings, eftir 2-5 tap gegn FH í Fossvogi í dag. „Já, svekktur með tapið, sérstaklega að þetta hafi endað svona stórt,“ sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings, eftir 2-5 tap gegn FH í Fossvogi í dag. 

„Ég get svo sem kannski ekki geta ætlast til að fá þrjú stig út úr þessum leik því að FH voru frábærar í þessum leik og áttu sigurinn skilið kannski en hann var full stór,“ hélt hann svo áfram.

Víkingar voru ekki góðar í fyrri hálfleiknum og aðspurður hvort að það sé áhyggjuefni hvernig liðið kom inn í leikinn segir hann:

„Kannski ekki alveg sammála því við héldum þeim alveg vel. Þær voru með boltann, spiluðu mikið fóru kannski ekki alveg eins oft inn fyrir og fengu ekki jafn mörg færi og þær hafa verið að fá í öðrum leikjum en skoruðu þarna tvö mörk sem að voru ekki góð af okkar hálfu. Við skorum gott mark, eigum svo upphlaup og skot í stöngina og vorum alltaf líkleg þegar að þær misstu boltann þá voru sénsar en við hefðum alveg getað spilað það betur ég er alveg sammála því.“

Ísfold Marý, leikmaður Víkings, fór illa meidd út af og fór af vellinum með sjúkrabíl, hvernig líta sú meiðsli út við fyrstu sýn?

„Þetta leit hræðilega út. Maður sá hnéð alveg beyglast þarna undir henni. Maður væri hissa ef það væri ekki eitthvað slitið í hnénu á henni.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.